Færsluflokkur: Bloggar
3.4.2008 | 09:13
Dropinn sem fyllti mælinn
Í mótmælum vörubílstjóra undanfarið hefur mest borið á kröfum um lækkun olíukostnaðar. Það er af því fréttamenn hafa hampað henni mest. Hins vegar hafa bílstjórarnir alla tíð haft uppi nokkrar kröfur sem hafa ekki verið eins sexí fyrir fréttamenn og því ekki heyrst eins mikið af þeim.
Það má glöggt heyra á orðum Geirs H. að þ.e. bílstjórar beri ekki aukinn kostnað í olíu vegna virðisaukaskatts að þá þurfi ríkið ekki að gera neitt. En hvað með almenning?
Hinar kröfurnar:
Vökulögin: Kröfur bílstjóra um breytingu eða niðurfellingu reglna um hvíldartíma eiga aðallega við bílstjóra sem keyra langkeyrslur út á land. Á Íslandi eru örlítið aðrar aðstæður en á meginlandi evrópu. Það er t.d. töluvert lengra á milli byggða víða hér á landi. Vegirnir hérna bjóða ekki heldur uppá að menn stoppi í vegkantinum og leggist til svefns. Reglurnar eru hins vegar þannig að hvað sem tautar og raular máttu ekki aka lengur en í 4,5 klst og þá verðurðu að stoppa í 45 mín. Heildarvinnutími yfir daginn má svo ekki fara yfir 9 klst. Sama hvernig veðrið er, sama hversu langt er í næsta bæ. Það að það sé 30 mín. akstur á endastöð kemur málinu ekkert við. Bílstjórar sem aka t.d. leiðina Reykjavík Seyðisfjörður þurfa dágóða lagni til að ná því svo vel sé og það má ekkert koma uppá. Í vetur var t.d. heil rúta af fólki strandaglópar á Selfossi um miðjan dag. Þannig var að rútan sem var að koma (að mig minnir) frá Höfn hafði komist eitthvað hægt yfir. Þegar komið var á Selfoss var bílstjórinn kominn yfir á tíma. Þrátt fyrir fínt veður og greiða leið til Reykjavíkur varð fólkið að sitja marga klukkutíma í sjoppu á Selfossi þangað til hægt var að koma þangað ferskum bílstjóra. Sniðugt?
Til að bæta gráu ofan á svart þá tók ríkið upp þessar reglur frá ESB og gerði þær gildar að því leiti sem snýr að bílstjórum. Sá hluti sem snýr að ríkinu fékk undanþágur. Þeir fengu t.d. undanþágur frá því að skapa bílstjórum aðstöðu við vegi landsins þannig að þeir geti farið að lögum og stoppað og hvílt sig. Þar fyrir utan hef ég óstaðfestar heimildir fyrir því að þessi lög gildi ekki í Evrópu nema við akstur milli landa.
Kílómetragjaldið: Fyrir nokkrum árum var fólki talin trú um að kílómetragjald á diselbílum hefði verið flutt inn í olíuverðið. Það var rétt að því leiti að krónutalan sem rukkuð var í kílómetragjald var sett inn í olíuverðið. Fólksbílaeigendur heyrðu ekki meira af því. En á sama tíma var skilinn eftir smá skammtur af kílómetragjaldi sem atvinnubílstjórar eru rukkaðir um. Venjulegur vörubíll þarf að greiða 12,98 kr. pr. km. Trailerarnir þurfa að greiða sömu upphæð auk þess sem að ef þeir ætla að flytja einhvern farm þurfa þeir að borga sömu upphæð að auki fyrir vagninn. Það gerir kr. 25,96 fyrir hvern ekinn kílómetra. Þetta hljómar kannski ekki mikið en fyrir bíl sem ekur 5-700 km á dag er þetta heill hellingur. 1,5 2 milljónir á ári eru ekki óalgengar tölur fyrir vörubíl, miklu hærri fyrir trailer.
Umhverfisgjald: Fréttir hafa borist af því að leggja eigi um næstu áramót s.k. umhverfisgjald á þessa bíla. Gjaldið mun reiknast á sama hátt og kílómetragjaldið. Þá verður ríkið farið að rukka bílstjóra um nokkurn vegin sömu upphæð í kílómetragjald og það gerði áður en það setti gjaldið inn í olíuverðið. Samt verður gjaldið líka þar inni. Ríkið verður þannig búið í raun að tvöfalda skattheimtu af atvinnubílstjórum á þessum tíma.
Endurmenntunin: Hvað sem mönnum finnst um endurmenntunina þá er ljóst að hún mun kosta miklar fjárhæðir bæði í útlögðum kostnaði og vinnutapi sem enginn mun taka á sig að greiða nema bílstjórarnir.
Ég er handviss um að ef bílstjórar fengju staðfestingu á því að hætt verði við að leggja umferðargjaldið á, kílómetragjaldið lækkað eða fellt niður og ef endurmenntunin verði a.m.k. þannig að hægt verði að sinna henni með vinnu, þá munu þeir hætta aðgerðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.3.2008 | 15:14
Svipting atvinnuréttinda
Kannist þið við starfstéttir sem missa atvinnuréttindi sín ef þær sinna ekki endurmenntun?
Flugmenn missa sín réttindi ef þeir fljúga ekki og mæta ekki örfáa tíma árlega í endurmenntun. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk þarf ekki að gera neitt til að halda sínum réttindum. Þó má það fólk skera okkur upp og dæla okkur fullt af lyfjum og skilur iðullega á milli lífs og dauða hjá okkur. Fjöldi starfsstétta hefur rétt á endurmenntun á einhverra ára fresti og þá með stuðningi sinna atvinnurekenda og/eða verkalýðsfélaga en engar aðrar en flugmenn verða að sinna endurmenntun. Nema vörubílstjórar.
Nú er staðan orðin sú að ef vörubílstjórar mæta ekki á langt námskeið á 5 ára fresti missa þeir réttinn til að sinna atvinnu sinni. Þetta samþykkti okkar æruverðuga þing umyrðalaust frá ESB. Til að kóróna málið þá sinnir starfsfólk ráðuneytanna sínu starfi við reglugerðasmíð af ítrustu nákvæmni og hefur þannig í raun hert reglurnar þannig að líklega verður ekki hægt að sinna endurmenntuninni um kvöldin eða um helgar, heldur verður viðkomandi vörubílstjóri að sitja námskeið heila vinnuviku.
Kostnaðurinn einn og sér við þetta er gríðarlegur. Getið þið ýmyndað ykkur hvað það kostar að láta 25-30 vörubíla standa ónotaða í heila vinnuviku? Það er líklegur fjöldi þáttakandi í einu námskeiði og það eru yfirleitt engir afleysingamenn. Vörubílstjórar eru iðullega einyrkjar. Það þarf að borga af bílunum þó þeir standi óhreifðir. Svo eru það tryggingarnar, tapaðar tekjur og fleira auk þess sem námskeiðið sjálft er ekki gefins.
Þar fyrir utan veit ég ekki alveg hvað þeir ætla að kenna heila vinnuviku. Stöku sinnum kemur nýtt umferðarmerki, það má nefna það. Svo er fínt að rifja upp skyndihjálpina. Þetta gæti tekið svona 1 2 daga hjá einhverjum sem talar hægt og með því að taka nokkrar kaffipásur. En heila viku með tilheyrandi kostnaði og tekjutapi! Það skal tekið fram að þetta er eingöngu bókleg endurmenntun.
Þetta bætist ofan á flóknar og stórskrýtnar vinnutímareglur (sem hafa verið teknar upp án aðlögunar frá ESB þ.e. bara sú hlið sem snýr að bílstjórum, ekki hliðin sem snýr að ríkinu), olíugjald, umhverfisgjald, kílómetragjald, o.fl., o.fl.
Eruði hissa þó vörubílstjórar séu fúlir?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.3.2008 | 12:29
Ekkert skrýtið
Nú er ég ekkert hissa. Ég bý í Vogum og vinn á höfuðborgarsvæðinu þannig að ég fer þarna um a.m.k. tvisvar á dag. Merkilegt að það skuli ekki verða fleiri slys.
Það vantar ekki að þarna er skógur af stikum og steinblokkum. En þarna eru harla fá leiðbeiningamerki. Það er t.d. stórvandi að finna afleggjarann niður í Voga ef maður er á ferðinni á öðrum tímum en í mestu birtu. Tala nú ekki um í rigningu! Þannig að maður lúsast þarna í gegn á bremsunni til þess að missa ekki af gatinu í steinblokkirnar sem tákna afleggjarann. Flestir sem hér búa hafa einhvern tíma ýmist misst af afleggjaranum eða rétt náð beygjunni áður en þeir voru komnir framhjá. Tala nú ekki um ef komið er sunnan frá! Það hafa að auki orðið fleiri en eitt slys undanfarið einmitt útaf þessu.
Annar kapítuli er ef maður ætlar að komast útúr Vogunum. Þegar komið er á fólksbíl upp að gatnamótunum er steinblokkunum raðað þannig beggja vegna að það er útilokað að sjá umferðina. Sama úr hvorri áttinni er. Þannig að eina leiðin til að komast, er að mjaka sér rólega út á brautina og vona að enginn komi rétt á meðan.
Svo er ég heldur ekki hissa á að þeir sem koma sunnan að átti sig ekki á því að þeir séu komnir á einnar akreinar veg. Ég held það sé eitt skilti sem tilkynnir um breytinguna úr tveimur akreinum í eina. Í fullkomnum heimi væri það nóg. En ef ökumaður einhverra hluta vegna missir af þessu skilti þá veit hann ekki um breytinguna. Þannig verða slysin.
Slysin hljóta að kosta meira en nokkur auka skilti?
![]() |
Fimm á slysadeild eftir umferðarslys |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.3.2008 | 10:46
Fjallganga og pestir um páska.
Á föstudaginn langa gekk ég með litlum hópi fólks á Helgafell ofan við Hafnarfjörð. Það er ekki mikil fjallganga og hentar öllum. Fín ganga til að vekja kroppinn af vetrardvalanum. Við fengum frábært veður og nutum okkar í botn!
Þegar á toppinn var komið fengum við okkur að sjálfsögðu nesti eins og allir alvöru fjallgarpar!
Helga var skiljanlega hreykin þegar hún komst á toppinn í sinni fyrstu formlegu alvöru fjallgöngu!
Í gær varð frumburðurinn veikur. Í nótt gerði svo litla barnið (18 ára) vart við sig og vildi aðstoð við að finna hitamæli og verkjalyf. Þá varð ég vör við að karlinn var líka orðinn veikur. Staðan er þannig núna, að morgni páskadags, að dóttirin og bóndinn eru bæði með 40 stiga hita en ég er ekki komin með nýjustu stöðu á frumburðinn. Ég sit s.s. hérna ein heil heilsu á páskadagsmorgni í þessu pestarbæli sem heimilið er í dag. Best að halda sig fjarri öllu fólki meðan þetta gengur yfir. Ætli ég borði ekki bara páskaegg á meðan!
Einhvern vegin í ósköpunum lentu öll þessi páskaegg inni á okkar heimili. Ekki NEMA 10 stk. ætluð fyrir 6 fullorðnar manneskjur. Það verður líklega ekki nein megrun svona rétt yfir páskana frekar en venjulega.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.3.2008 | 12:46
Djöfull er ég pirruð!
Já, ég blóta!! Hér röflar fólk daginn út og inn yfir getuleysi og hverju öðru sem það finnur að hjá lögreglunni. En er eitthvað að undra?? Hafiði heyrt aðra eins steypu eins og þennan dóm yfir gaurunum sem börðu lögreglumenn við skyldustörf??
Ekki sannað að þeim hafi verið ljóst að um lögreglumenn væri að ræða Hvað!!! Mennirnir voru með einkennismerki á lofti, kölluðu upp hverjir þeir væru en samt eiga karlarnir ekki að vita hverjir þeir eru!! Kommon!! Er þetta ekki bara enn eitt dæmið um að orð lögregumanna eru ekki jafngild orðum glæpamanna og jafnvel metin minna en þeirra orð. Hvað á það að þýða??
Þar fyrir utan finnst mér ekki skipta rassgatsmáli hvort þeir vissu að mennirnir voru í löggunni eða ekki. Ekki dytti neinum í hug að abbast uppá löggu á frívakt í Ameríku, hvað þá einni sem væri í vinnunni. Beint í steininn með viðkomandi og lyklinum hent!
Ef við (og dómstólar) getum ekki druslast til að verja þá lögreglumenn sem einhverra hluta vegna hafa áhuga á að sinna þessu kolbilaða starfi getum við ekki heldur gert kröfur til þeirra að þeir geri einhver stórvirki á meðan þeir eru í vinnunni. Svona rétt á milli þess sem þeir eru lamdir!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.3.2008 | 20:53
Það er ekki komið vor.
Ekki ennþá. Það er ekki komin rétta lyktin af loftinu. En það styttist í það.
Það var dásamlegt veður í dag. Stafalogn, sól og hitinn aðeins yfir frostmarki. Samt flögruðu örsmá snjókorn niður úr himnunum svona rétt eins og það væri verið að minna mann á að vetur konungur væri ekki enn búinn að sleppa takinu. En það styttist greinilega í það. Krókusar og páskaliljur eru farnar að skjóta upp kollinum. Það er nærri öruggt merki um að vorið sé á næsta leiti.
Ég var úti eftir hádegið að tína rusl, aðallega hálfmorknaðar rakettur, og njóta veðurblíðunnar. Karlinn fór með rusl í Kölku og gerði atlögu að veggjakrotinu sem setti sálarlíf mitt á annan endann fyrir ekki svo löngu. Góðar fréttir. Ósóminn rann af og enginn sem ekki veit hvar krotið var getur fundið merki um það.
Pönnukökur með kaffinu og fullt af fólki í kaffi, systkini mín og þeirra börn, svona eftir því hverjir voru heima og hverjir ekki.
Góður dagur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 19:01
Ég er fordómafull.
Ég verð víst að kyngja því. Ég er með fordóma gagnvart ungum strákum. Tvisvar undanfarna mánuði hef ég farið í verslun og verið hundfúl yfir að ungur strákur afgreiddi mig. Svo hef ég orðið að kyngja því að þeir veittu afbragðs þjónustu.
Í fyrra skiptið fór ég í Ormsson og var að velta fyrir mér pottum og pönnum. Svo kom gutti sem varla var orðinn tvítugur að aðstoða mig. Ohhh... hvað ætli svona ormur viti um pönnur!!!! hugsaði ég. Rangt!! Hann vissi sko allt um allar pönnurnar í búðinni! Svaraði öllu sem mér datt í hug að spyrja um og bætti að auki við fullt af upplýsingum. Endaði með því að ég keypti mér dýrindis pönnu sem kostaði þónokkuð minna en ég hefði borgað án hans aðstoðar. Elda sæl á minni fínu pönnu og hugsa til hans í hvert sinn. Eða kannski annað hvert sinn.
Svo fórum við karlinn minn í Mest í gær. Skoða kantsteina í garðinn. Þangað fórum við inn í drullugum vinnugallanum og áttum helst von á að vera hent út fyrir sóðaskapinn. Þá sveif að okkur annar unglingur voða fínn og penn sem taldi ekki eftir sér að koma yfir hálfa búðina til að bjóða fram aðstoð. Ohhh.... hvað ætli unglingur viti um hellur og grjót!! hugsaði ég. Aftur rangt. Hann vissi nánast allt um hellur og grjót og fylgdist vel með því sem við ræddum okkar á milli og bætti við upplýsingum þar sem við á. Svo var hann að auki alveg ljómandi sölumaður og benti okkur á að ljósin á pallinn (sem kemur kannski eftir einhver ár) væru á tilboði núna. Svo við fórum alsæl í okkar drullugalla úr búðinni. Líklega mun ég hugsa til hans öðru hvoru þegar kantsteinarnir verða komnir í garðinn.....
Svo nú þarf ég að fara að hugsa minn gang. Það er ekkert sem segir að ungir strákar geti ekki verið áhugasamir í vinnunni sinni. Gefa fólki séns!!!
(Tek fram að myndirnar tengjast efni pistilsins ekki beint! )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.3.2008 | 15:32
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Oft má satt kyrrt liggja.
Ég hef oft hugsað til þessara málshátta undanfarna daga. Líka þess að mamma sagði stundum við mig að þó einhver annar væri bjáni og kæmist ágætlega upp með það þá þýddi það ekki að ég þyrfti endilega að vera það líka. Ég hef hugsað um þessi orð hennar og málshættina undanfarið, aðallega í tengslum við Múhameðsteikningarnar en líka í tengslum við umræðu um hvað megi segja og hvað ekki á blogginu.
Mér finnst alveg kýrskýrt að skv. lögum má hver sem er teikna mynd af Múhameð eða hverjum sem er í hvaða samhengi sem er. En hefur það einhvern tilgang? Sá sem teiknaði mynd af Múhameð með hundi og svíni vissi alveg hvað hann var að gera. Hann vissi alveg að það myndi móðga. Hann vissi alveg að þessi dýr eru óhrein í augum fólks sem trúir á Islam. Annars hefði hann líklega notað asna eða hænu eða eitthvert enn annað dýr til að koma mögulegum boðskap á framfæri. Mér finnst því augljóst að hver sá sem teiknaði þessar margumræddu myndir var leynt og ljóst að snapa fætíng eins og einu sinni var gjarna sagt.
Við höfum öll unnið eða verið í samneyti við einhvern leiðinlegan, pirrandi, púkalegan, kjaftask. Eða einhvern álíka. En ef við þurfum að vera í daglegu samneyti við einhvern þá yfirleitt látum við kyrrt liggja eða tökum kurteislega á málinu. Við höldum friðinn. Hvers vegna ekki að gera það líka við einhverja sem eru ekki alveg næst manni? Hvers vegna skyldum við ekki sýna ókunnugu fólki sömu kurteisi og þeim sem eru næst manni?
Hafi Múhameðsteikningarnar haft einhvern tilgang eða boðskap fram að færa er alveg ljóst að hann fór algerlega fyrir ofan garð og neðan hjá meirihluta mannkyns. Þar með eru þessar teikningar ekkert annað en meiðandi fyrir þá sem þannig kjósa að hugsa. Þar með er ég á móti slíkum birtingum. Beittar ádeiluteikningar geta verið stórskemmtilegar en þær eru aldrei meiðandi.
Svo er það spurningin um hvað má skrifa á blogginu og hvað ekki. Ég heyrði viðtal við tvo nafngreinda menn í útvarpinu í vikunni, einn fyrrverandi ritstjóra dagblaðs og hinn núverandi ritstjóra vefsíðu. Báðir voru sammála þeirri meginreglu að um bloggið ætti að gilda sömu reglur og um birtingu efnis í dagblöðum. Ég er sammála þeim. Ef pistill er ekki birtingarhæfur í dagblaði þá á hann ekki heldur erindi á vefinn. Vefurinn er ekkert síður opinber birting en dagblað eða tímarit.
Ef þú hefur einhverja skoðun á tilteknum einstaklingi og finnst þú þurfa að viðra hana við alþjóð þá er það þitt val. Mér finnst framan við sleggjudóma lýsir því að þetta er persónuleg skoðun þín. Ef þú hins vegar segir að einhver sé rasisti eða eitthvað álíka þá ertu kominn með fullyrðingu sem betra er að hafa sannanir fyrir. Þar með er líka kominn grundvöllur fyrir málshöfðun ef ávirðingarnar eru þess eðlis.
En til hvers þarf fólk að viðra opinberlega persónulegar skoðanir á einstaklingum? Vissulega getur það verið eðlilegt og réttlætanlegt. En sleggjudómar sem hafa engan tilgang annan en að særa og valda úlfúð hafa engan tilgang og eiga engan rétt á sér. Jafnvel þó einhver annar hafi skrifað eitthvað álíka. Maður þarf nefnilega ekkert að vera fífl sjálfur þó einhver annar sé það.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.2.2008 | 12:45
Ótrúlega flott!!
Heyrnarlaus eða ekki.... Ég held að hvaða fullheyrandi manneskja mætti vera hreykin af þessum dansi. Þetta er ótrúlega flott hjá þeim!
Kíkiði bara á klippuna!
![]() |
Listin brýtur niður múra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.2.2008 | 20:05
Skemmdarverk!!
Þegar ég flutti inn í húsið mitt fékk ég þessa góðu tilfinningu um að vera komin heim. Ég er ánægð með húsið mitt og finnst það bæði notalegt og fallegt. Hef líka aðeins verið að betrumbæta t.d. með því að byggja vegg með ljósum frá húsinu út að götu. Svo er garðurinn á öðrum endanum af því við erum í miðjum klíðum við að gera eitthvað gott úr honum. Hvorugt sést á þessari mynd af slotinu.
En nú hefur einhver ekkisensbévítanshálvitahornösmeðkúkíbrókogaumingjastimpiltilæfiloka SPREYJAÐ á húsið mitt!!!! Ég er gersamlega brjáluð af reiði, búin að kalla á lögguna og alles.
Til að bæta gráu ofan á svart er húsið mitt klætt með Steni plötum svo það er nærri útilokað að það sé hægt að þrífa þetta af. Þar að auki veit ég að liturinn á húsinu er ekki til lengur þannig að ef maður ætlar að losna við þetta þá þarf að klæða heila húshlið. Þá verða þúsundkallarnir farnir að fjúka í hundruðum!!
Ef ég næ bráðum að róa mig þá ætla ég að kíkja á tryggingaskilmálana á Netinu en það er afar hæpið annað en að við sitjum uppi með þetta tjón. ARRRRRGGGG!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)