31.1.2009 | 18:12
Ljósmyndaferð
Við hjónakornin fórum í örstutta ljósmyndaferð áðan. Skruppum uppá Höskuldarvelli og vorum þar ca. hálftíma. Fingurnir þoldu ekki meira í frostinu.
Meðan Siggi lék sér með stóru "alvöru" vélina tók ég slatta af myndum á litla krílið. Þæru urðu nokkrar alveg ágætar og ég er t.d. bara nokkuð sátt við þessa hér við hliðina.
Keilir, stolt okkar á Suðurnesjamanna, og umhverfið í vetrarbúningi baðað sól í stillunum áðan. Bara yndislegt!
Athugasemdir
það er augað sem skiptir máli ekki vélin...fín mynd
Einar Bragi Bragason., 1.2.2009 kl. 01:56
Flott mynd, haltu áfram á þessari braut...
Guðmundur Guðmundsson, 1.2.2009 kl. 14:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.