Færsluflokkur: Bloggar

Bitlausir hnífar

Þar sem ég stóð í eldhúsinu fyrr í kvöld og reytti og tætti kjötið af beinunum á kjúllanum undir því yfirskyni að ég væri að úrbeina, varð mér skyndilega hugsað til Möggu. Ég hugsaði; Magga á þessa fínu potta... Magga á alveg örugglega líka almennilega hnífa! Svo urðu pælingarnar eilítið skynsamlegri. Ég fór að velta því fyrir mér hvernig standi á því að svo fáir eiga almennilega hnífa? Pabbi sagði mér einu sinni, og ég trúi honum alveg, að það sé miklu líklegra að maður skeri sig, og það illa, á bitlausum hnífum en beittum. Samt eru eldhús landsmanna full af bitlausum hnífum. Við eigum rándýr eldhús með flottum eldavélum, ofnum, ísskápum og hvaða dóti og drasli sem við getum troðið í þau. En fæstir eiga almennilega hnífa.

Ég hef oft staðið í búðum og starað á alla fallegu og fínu hnífana sem hanga þar í röðum. Ég hef samt aldrei keypt neinn af viti. Þegar ég hef verið komin með hníf í hendurnar í verðflokki sem gefur til kynna að þetta ætti að vera góður hnífur hef ég alltaf hætt við. Annað hvort hef ég fengið skyndilegt nýskukast eða hef farið að velta því fyrir mér hvort þetta sé raunverulega góður hnífur. Ég vil nefnilega ekki eyða miklum peningum nema vera viss um að fá góða vöru.

Þannig að eldhúsið mitt heldur áfram að vera fullt af bitlausum hnífum.

 


Tölvuvandamál!

Nú reyti ég hár mitt í geðvonsku! Það er eitthvað að Netinu hjá mér sem er að gera mig óða! Þetta lýsir sér m.a. í því að ýmist vistast athugasemdir mínar á bloginu alls ekki eða margoft! Ég bið þá sem eru að fá margskráningar innilega afsökunar en veit ekki hvort ég get lofað bót og betrun því ég veit ekki hvað er að.

Síminn segir að það sé ekkert að hjá þeim. Séníið á heimilinu (sem er alvöru séní - hefur unnið við djúpar tölvukerfispælingar árum saman) segir að það sé ekkert að hjá okkur svo við kjósum að kenna Símanum samt um.

Vona að þetta komist á Netið og helst ekki oftar en einu sinni. Þetta er s.s. útgáfa 2 af þessum pistli þ.e. útgáfa 1 hvarf eitthvert þegar ég reyndi að vista.....


Tölvuvandamál!

Nú reyti ég hár mitt í geðvonsku! Það er eitthvað að Netinu hjá mér sem er að gera mig óða! Þetta lýsir sér m.a. í því að ýmist vistast athugasemdir mínar á bloginu alls ekki eða margoft! Ég bið þá sem eru að fá margskráningar innilega afsökunar en veit ekki hvort ég get lofað bót og betrun því ég veit ekki hvað er að.

Síminn segir að það sé ekkert að hjá þeim. Séníið á heimilinu (sem er alvöru séní - hefur unnið við djúpar tölvukerfispælingar árum saman) segir að það sé ekkert að hjá okkur svo við kjósum að kenna Símanum samt um.

Vona að þetta komist á Netið og helst ekki oftar en einu sinni. Þetta er s.s. útgáfa 2 af þessum pistli þ.e. útgáfa 1 hvarf eitthvert þegar ég reyndi að vista.....


Er hljóðkerfið bilað??

Hvernig stendur á því að kynnar finna hjá sér þörf til að garga í hljóðnemann?? Það getur bara varla verið að hljóðkerfi ágætra stofnana eins og t.d. RÚV séu svo léleg að það þurfi sífellt að nota raddstyrk sem hentar til að kalla á milli húsa til að koma einföldum kynningum á framfæri í sjónvarpi. Þetta á við bæði við kynningar í sjónvarpssal og í útsendingum utan úr bæ.

Mér leiðist s.s. að láta stöðugt garga á mig og er þess vegna búin að gefast upp á að horfa á Laugardagslagið þó að ég hafi áhuga á að heyra og sjá flutninginn á nýju lögunum.


Þar kom að því....

.... að það varð árekstur á nýja veginum austur! Núna er allt lokað vegna áreksturs og ekki nokkur leið að hleypa neinum framhjá. Engin vegöxl, ein akrein, vírinn á milli akreina og allt fast með tilheyrandi bílaröð langar leiðir.

Skyldi þetta verða til þess að vegagerðin og þeir sem stjórna vegaframkvæmdum sjái að þessi uppsetning á veg er ekki sérlega sniðug?


Ég er með smá áhyggjur......

af þessu hitaveitumáli. Ekki það að ég verð að viðurkenna að ég næ ekki alveg samhenginu í öllu því sem er að gerast þessa dagana í sambandi við sameiningu REI og GGE.

Það sem ég hef hins vegar áhyggjur af er að vatnið okkar sé að verða einkaeign. Hingað til hafa landeigendur átt rétt til vatnsins á sínu landi en því fylgt kvaðir að þeir hafi orðið að gefa eftir vatn ef það hefur þurft t.d. vatn til húshitunar til almennings. Þetta virðist vera að breytast.

Hvað gerist ef hitaveitur landsins verða allt í einu orðnar í einkaeign? Hvað gerist þegar einhver ævintýramaðurinn getur ekki staðið við stóru orðin og hitaveita einhvers staðar á landsbyggðinni fer á hausinn? Hvað þá? Þó svo færi ekki, er þá alveg í lagi að allur almenningur verði að beygja sig undir það að borga meira og meira eftir því sem stjórarnir í þessum fyrirtækjum heimta meiri arðsemi til að standa undir meiri útrás eða stærri bíl undir stjórana? Við getum skipt um símafyrirtæki eða jafnvel hætt að nota síma ef við erum ósátt við símafyrirtækin. Við getum hætt að kaupa fisk eða brauð eða næstum hvaða neysluvöru sem er ef við erum ósátt við verð eða gæði. En við getum ekki hætt að kaupa heitt og kalt vatn. Við erum algerlega háð orkufyrirtækjum landsins til að halda lífi og verðum því um alla framtíð að borga það sem upp er sett fyrir vatn, rafmagn og hita.

Ég viðurkenni fúslega að ég gladdist yfir krónunum sem komu í kassann hjá bæjarsjóðnum þegar hluturinn í Hitaveitu Suðurnesja var seldur. Það var hins vegar skammsýni. Betra hefði verið að taka lífinu aðeins rólegar og flýta sér ekki eins mikið að selja og verða ríkur. Nú veit enginn hvert stefnir og kannski þarf ég að borga vatn uppsprengdu verði innan tíðar.


Loksins, loksins, LOKSINS......

...er sturtan mín komin í lag!!! Hvílík dýrð og dásemd Smile Eftir að hafa verið sturtulaus síðan um síðustu páska get ég ekki annað en verið yfir mig sæl og ánægð með að vera búin að fá hana í lag. Svo er hún líka miklu flottari, fínni og betri en áður!!! Grin


Gelding andans

Hvað er málið eiginlega með nafngiftir á íslenskum fyrirtækjum þessa dagana? Læt vera þegar fyrirtæki sem starfa á erlendum vettvangi kjósa að bæta "Group" aftan við nafnið sitt. Fyrirtæki sem eingöngu starfa á íslenskum markaði sem gera þetta eru bara hallærisleg.

Nú er ég hins vegar að spá í þessi fáránlegu nöfn sem eru að birtast okkur síðustu mánuði: Sko, Og, Já, N1 og nú síðast A4!!! Kannski einhver fleiri álíka sem ég man ekki eftir. Hvílíkt sem fólk þarf að vera gelt í kollinum að geta ekki fundið eitthvað aðeins kjarnyrtara og jafnvel örlítið lýsandi fyrir reksturinn sem nafnið hangir við! Eflaust hefur einhver sniðug auglýsingastofa getað rukkað einhverja hrúgu af seðlum fyrir þessa visku andans.


Frábær skemmtun!

Við hjónin fórum í gærkvöldi á Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi.

Skemmst frá að segja hef ég ekki skemmt mér eins vel í langan, langan tíma. Benedikt er hreinn snillingur að segja söguna þannig að allir skilja og skemmta sér yfir. Ég lærði helling og skemmti mér stórkostlega á meðan. Mæli eindregið með þessari kvöldskemmtun.

Fyrir ykkur sem finnst þetta of langt frá höfuðborginni..... þið eruð komin í bæinn vel fyrir miðnætti, þetta er nú ekki lengra en það.


Ríkisfjármálin

Nú er allt á öðrum endanum yfir framúrakstri ríkisstofnana í fjármálum. Þingmenn og fleiri eru andaktugir í vandlætingu sinni yfir stjórum þessara stofnana. Þeir hafa brotið lög - fjárlögin eru jú lög.

En hvaða lög eiga þessir stjórar að brjóta? Þessar stofnanir er flestar ef ekki allar reknar eftir einhverjum lögum og eiga að sinna einhverri ákveðinni lögboðinni þjónustu. Ef þær fá ekki aura til þess, þá brjóta stjórarnir lög um starfsemi stofnananna sinna. Hvort er þá betra að brjóta fjárlög eða lög um rekstur stofnunarinnar?

Flestar þessarar stofnanir hafa verið sveltar í fjárlögum árum saman. Þess vegna finnst mér stjórunum í mörgum tilfellum vorkunn. Þeir eru að fá skammir fyrir að fjárlaganefnd úthlutar þeim einhverri slembitölu til rekstrarins ár hvert sem oft á tíðum er ekki nokkur leið að reka dótið fyrir.

Nú eru allir löggustjórarnir alveg uppí topp sammála um að borga löggunni 30.000 krónur í bónus mánaðarlega. Fínt. En hvaðan koma peningarnir? Verður ekki einhver skammaður útaf þessu á næsta ári fyrir framúrakstur á fjárlögum þessa árs?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband