Ha??

Ég er oft tilbúin til að trúa því að ekki sé allt ljóst í sambandi við það sem fer fram á milli tveggja einstaklinga þegar enginn annar sér til. En ekki núna!

Héraðsdómur segir ljóst að "drengurinn" nauðgaði konunni. Hann sleppur vegna tækigalla! Hver í fj..$#"&#$% á að vorkenna svona aumingja???  Vona að hann eigi sem erfiðast líf fyrir höndum. Fórnarnlambið hans á það án nokkurs vafa.


mbl.is Sat inni frá 19. mars sl.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta sannar bara einu sinni enn hvað við erum með glatað dómskerfi hér. Algjörlega til skammar. Nei ég vorkenni honum ekki.

Anna (IP-tala skráð) 6.7.2007 kl. 10:23

2 identicon

Ungur saklaus drengur er bún að sitja inni í 4 mánuð saklaus. Héraðsdómur hefði ekki sleppt manninum væri ljóst að hann væri sekur. Mér þykjir nú fremur ljóst á þessum yfirlýsingum ykkar hérna að þið hafið ekki lesið dóminn, en hann má finna á www.domstolar.is. Ef að dómssagan er öll lesin þá er nokkuð ljóst að strákgreyið sé búin að sæta miklu óréttlæti undanfarna 4 mánuði, Það er hann sem er fórnalamb í þessu máli.

Hér eru brot úr dómnum

Samkvæmt ákærunni í málinu og samkvæmt 18. gr. og 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga kemur það til álita hvort ákærði hafi með ofbeldi, eins og það hugtak er skilgreint í 1. mgr. 194. gr., og af ásetningi þröngvað X til samræðis og til annarra kynferðismaka. Fyrir liggur að þau tvö urðu samferða niður að snyrtingunni og staðhæfing ákærða um að vel hafi farið á með þeim á leiðinni þangað þykir ekki vera ótrúleg í ljósi orðaskipta þeirra þar inni. Þá verður ekki heldur litið fram hjá því að X kveðst ekki muna atvikin í smáatriðum vegna ölvunar, að hún hefur sagt að ákærði kunni að hafa haldið utan um hana á leiðinni og einnig að hann kunni að hafa misskilið þegar hún svaraði honum á ensku eftir að hann hafði boðist til þess að fylgja henni niður. Verður því ekki séð að ákærði hafi, fram til þess að þau fóru inn í salernisklefann, haft ástæðu til að halda að hún væri honum andhverf.

X hefur sagt að hún hafi frosið, orðið fyrir áfalli, fengið sjokk, verið eins og í vondum draumi þegar ákærði ýtti henni inn í salernisklefann. Veitti hún þá og síðan enga mótspyrnu og kom ekki upp orði fyrr en hún rankaði loks við sér við sársaukann milli fótanna. Ýtti hún þá ákærða af sér og stóð upp. Er frásögn hennar alveg ótvíræð um það að ákærði fór öllu sínu fram við hana án þess að hún veitti athæfi hans viðnám eða mótmælti því. Í því sambandi ber sérstaklega að hafa í huga að hún reyndi ekki að kalla á hjálp þegar hún heyrði að einhver kom inn á snyrtinguna. Þá er að einnig að líta til þess að X þykir, fram til þess að þau fóru inn á salernisklefann, ekki hafa gefið ákærða ástæðu til að halda það að hún væri honum andhverf. Þegar allt þetta er haft í huga álítur dómurinn að ákærða hafi ekki hlotið að vera það ljóst að samræðið og kynferðismökin væru að óvilja X.

Þegar maðurinn hafi spurt hana hvað gerðist næst hafi hún sagt að hún vissi það ekki og hann þá ýtt henni orðalaust inn í básinn. Hafi hún fengið áfall við þetta en ekkert sagt við því. Aðspurð kveður hún ákærða samt ekki hafa haft neina ástæðu til þess að halda að hún vildi eiga mök við hann. Hafi hún ekki gefið það til kynna með neinum hætti, brosi eða neinu öðru. Hún kynni hins vegar að hafa brosað til hans fyrst þegar hún spurði hann til vegar. Hún kveðst hafa greinst með athyglisbrest en hann sé ekki svo mikill að það hái henni í daglegu lífi. Gæti hans aðeins í því hversu fljót hún sé að taka eftir eða „fatta hluti“ og sé hún lengur að því en aðrir. Gæti vel verið að þessi kvilli hafi haft áhrif á hvernig hún brást við þegar maðurinn ýtti henni inn í klefann.

Ég mæli endilega með því að þið lesið dóminn í heild sinni ef að ætlið að fara mynda ykkur skoðun opinberlega um þetta mál......

Stelpan sagði ekki -NEI- Veitti ekki mótspyrnu- Sagði að það gæti vel verið að hann hafi haldið utan um hana niður stigann en hún var ölvuð- hún veitti ekki mótspyrnu því hún fraus -kallaði ekki á hjálp þegar að einhver kom inn á klósettið á meðan að þau voru þar inni og hún sagði ekki nei En þetta er nátturulega allt athyglisbrestinum að kenna!!!

Ég er ekki að segja að stelpan hafi verið að ljúgja að hún hafi upplifað þetta sem nauðgun. Hún sýndi enga hegðun gagnvart honum sem að benti til þess að hún vildi þetta ekki. Stelpan brosir til hans fylgir henni niður hún er ölvuð man lítið eftir atburðum. Kannski réttlætir hún í hausnum á sér þessa lausgirtu eftirsjá með því að telja sjálfri sér trú um að hún hafi ekki viljað þetta. Ákærði sagði strax að hann hafi ruglast á gati og var næstum búin að setja hann í endaþarm- Næstum því - Hann gerði það ekki - svo þegar að þau lágu voru í þröngum salernisklefanum á gólfinu fann hún sársauka við endaþarmsop (sem var jú afleiðing þess að hann var næstum því búin að setja liminn í endaþarm þegar að þetta byrjaði- ákærði hefur aldrei neitað því ) en þegar að hún fann til þá fyrst "afrosnaði hún" og vildi fara og þá fór hún líka - við fyrstu viðbrögð sem hún sýnir að hún vilji þetta ekki þá stendur hún upp og fer- hann neyddi hana ekki til að vera þarna þegar að hann sá að hún vildi ekki meir. Gerð var ítarleg geðrannsón á ákærða og þar segir Sigurður Páll geðlæknir sem var dómkvaddur matsmaður í þessu máli

Hann kveður ákærða ekki bera þess merki að vera tilfinningalaus glæpamaður heldur taki hann mjög nærri sér þær aðstæður sem hann hafi ratað í. Hafi hann gert sjálfum sér mein með því að skera sig í fangelsinu.

Það er ótrúlegt hvað samfélagið dæmir fólk án þess að afla sér ítarlegra upplýsinga um málsefni og taka afstöðu frá staðreyndum, en ekki æsifrettamönnum

María Steinars (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 01:51

3 identicon

Satt segirðu, María. Eins og ég sagði í upphafi, maður veit í rauninni aldrei hvað fer fram milli tveggja einstaklinga þegar enginn annar sér til.

Björg (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband