Færsluflokkur: Bloggar
11.1.2008 | 18:22
Jökullinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.1.2008 | 18:07
Bloggskortur.....
Ég hef verið frámunalega löt við blogg undanfarið. Mér til afsökunar segi ég að ég hef verið alveg ótrúlega þreytt undanfarin kvöld og hreinlega ekki nennt að skrifa neitt. Stundum hefur mér dottið í hug um miðjan daginn að skrifa eitthvað bráðmerkilegt en það er jafnan rokið út í veður og vind þegar ég er komin heim, úr vinnugallanum, búin að elda, ganga frá, athuga með þvottinn .. Maður er nú bara stundum þreyttur. J
Annars dregur það úr manni ótrúlega orku að byrja á nýjum vinnustað. Þó ég þekki alla og starfið sjálft þá er þetta samt einhvern vegin ótrúleg viðbrigði að vera allt í einu farin að vinna við þetta allan daginn, alla daga. Maður er samt strax að venjast og allur að koma til.
Á morgun ætla ég að vinna við bókhaldið. Það þýðir að ég mun sitja við tölvuna hérna heima og geta komið háfleygum hugsunum mínum á blað (skjá) strax og þær gera vart við sig. Ég bíð spennt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.12.2007 | 17:12
Hömluleysi græðginnar....
Mikið lifandis, skelfingar ósköp er ég svakalega fegin því að finnast áfengi og áhrifin af því kki eins góð og af sykri. Ef svo væri myndi ég sennilega vera sofnuð um kaffileitið hvern einasta dag. Svo væri ég líka löngu búin að drekka frá mér allt sem ég á og örugglega fjölskylduna líka.
Í morgun þegar ég vaknaði var ég alveg búin að fá mig fullsadda af þessu áti á mér frá því í byrjun desember. Þá var nefnilega allt í lagi að byrja að háma í sig af því það voru alveg að koma jól. Alla vega vaknaði ég staðföst í því að borða einungis á matmálstímum og halda mig frá öllu sukki. Með það í huga gekk ég fram í eldhús og fékk mér smákökur .
Staðan er í stuttu máli svona:
- Átið hefur slæm áhrif á blóðþrýstinginn en ég ét samt!
- Átið hefur slæm áhrif á fataskápinn en ég ét samt!
- Átið veldur mér kláða og fleiri óþægindum (ofnæmi) en ég ét samt!
- Átið og hreyfingarleysið eru farin að gera mig stirða og slappa en ég ét samt!
- Átið og áhrif þess er mér endalaus uppspretta geðvonsku og vonbrigða en ég ét samt!!!
Í stuttu máli er sama hvað gengur á .. ég ét samt!! Þegar allt nammi sem mér finnst gott er búið borða ég bara vondu molana. Allt frekar en að sleppa því!
Nú eru að koma áramót. Ég hef aldrei strengt áramótaheit og ætla ekki heldur að gera það núna. En um þessi áramót eru samt breytingar framundan. Ég hætti í vinnunni sem ég hef verið í s.l. 6 ár og fer að vinna með karli mínum. Ég ætla líka að byrja aftur að hreyfa mig reglulega. Og ég ÆTLA líka að ná tökum á munni mínum og maga.
Gleðilegt ár öll og munið að ganga hægt um gleðinnar dyr um áramót sem alla aðra daga. Allt er best í hófi og það er hreina satt!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.12.2007 | 11:27
Kæru vinir,
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.12.2007 | 23:25
Börn í auglýsingum
Það er öðru hvoru talað um að takmarka eða banna auglýsingar sem beint er að börnum. En hvað með notkun barna í auglýsingum? Það fer ótrúlega í taugarnar á mér þegar börn eru notuð til að auglýsa ótrúlegustu hluti!
Í kvöld er ég búin að heyra eitt barn segja hvað það sé óskaplega notalegt að versla í ákveðinni búð og annað að það sé svo hrætt um pabba sinn í vinnunni að allir eigi að versla á hann öryggisfatnað og gefa honum í jólagjöf! Finnst fólki þetta í lagi? Ekki mér. Þetta fer alveg hroðalega í taugarnar á mér!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2007 | 10:20
Oft rekið mig á þetta
Vörur eru oft ódýrari pr. kg. í litlum pakkningum en stórum. Þetta er t.d. næstum algilt með rjóma. Það er yfirleitt alltaf ódýrara að kaupa rjóma í pela pakkningu en í 1/2 ltr. pakkningu. Stórundarlegt dæmi og algerlega úr takti við það sem reynt hefur verið að telja manni trú um.
![]() |
Vörur í stórum pakka dýrari en í litlum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2007 | 10:34
Jólin loksins að koma!
Jæja, svei mér þá ef jólaskapið lét ekki kræla á sér í morgun þar sem ég sat föst í umferðarteppu morgunsins í svarta myrkri, roki og rigningu.
Ég hlusta yfirleitt alltaf á Rás 2 á morgnanna og í morgun spiluðu þau fyrir mig jólalag með Ellý og Vilhjálmi. Þau klikka aldrei. Svo kom lag sem ég man ekki hvað heitir með Pálma Gunnars. Alger snilld og jólaskapið birtist.
Ég skrifaði víst athugasemd hjá Einari Braga og sagði að Pálmi væri svona borderline raulari (crooner). Þetta lag var svo aflappað og notalegt hjá honum að ég ákvað að þetta væri rétt hjá mér. Ég ákvað reyndar líka að hann væri flottasti raulari í heimi. Með svo svakalega flotta og fyllta rödd að þessir frægu, gömlu útlensku raularar komast ekki í hálfkvisti við hann.
Áfram Pálmi og áfram Rás 2 með svona fína tónlist!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2007 | 12:47
Aðventutónleikar Frostrósa
Ég og karlinn skelltum okkur á aðventutónleika Frostrósa. Við fórum á sunnudagskvöldið sem mér skilst að hafi verið 3. og síðustu tónleikarnir.
Tónleikarnir voru svosem ágætir en ég fer ekki aftur á næsta ári. Ég fór kannski með rangar hugmyndir í kollinum en ég var s.s. að sækjast eftir jóla- og aðventustemmingu. Stærstan hluta tónleikana, sérstaklega fyrir hlé, var mikið nær að stemmingin minnti á rokktónleika. Nánast öll lög voru í rosalega stórum og mikilfenglegum útsetningum þannig að í raun voru útsetningarnar að yfirgnæfa lögin. Eitt lag fyrir hlé stóð algerlega uppúr en þá fluttu dívurnar fjórar eitt lag án undirleiks og gerðu það virkilega vel.
Ég er mjög hrifnæm á tónleikum og skelf iðulega úr kulda (fæ svo mikinn hroll þegar ég heyri eitthvað fallegt) eða ég háskæli. Nú eða að ég geri hvort tveggja. Á þessum tónleikum táraðist ég aðeins einu sinni og varð aldrei kalt. Það var við flutninginn á Frá ljósanna hásal. Það er nú líka varla hægt að klúðra því.
Skrýtnast af öllu fannst mér að Fóstbræður væru eingöngu notaðir í bakraddir. Þessi rosalega flotti kór flutti ekki eitt einasta lag! Ekki eitt einasta!! Alger skandall finnst mér.
Annars var öll umgerð rosa flott og falleg. Sviðið var glæsilegt og öll framkvæmdin. Reyndar voru ljósameistarar aðeins úti á túni því nokkur spotlight sem flökkuðu um sviðið lyftust svo mikið fram í sal að þau skinu beint í augun á tónleikagestum. Ég sá oft stjörnur eftir að hafa fengið þetta í augun. Samt var ég á 13. bekk.
Ætli ég segi ekki bara að mér finnist tónleikarnir of "pródúseraðir". það vantaði alla tilfinningu og öll jól í þessa tónleika. Ég ætla að spara mér þessa þúsundkalla á næsta ári. Meiri jól á tónleikum hjá einhverjum litlum sætum kór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.12.2007 | 12:12
Óveðursdugnaður
Ég hafði ákveðið að stunda ekki launaða vinnu í dag en ætlaði að eyða deginum í "ekki neitt". Þetta ekki neitt var að fara í Bóksölu stúdenta, Bónus, Smáralindina, Elko og eitthvað fleira smálegt sem tengist jólum og jólaundirbúningi. Vegna veðurs var ákveðið að snúa við öllum áætlunum. Sennilega geri ég bara "ekki neitt" á morgun.
Þess í stað er ég búin að standa í eldhúsinu frá kl. 8 í morgun og baka 6 tertubotna og eina sort af smákökum. Mér finnst ég ótrúlega dugleg og verð bara að segja frá þessu! Eftir hádegi ætla ég að reyna að pússa ljósakrónuna og gera svolítið hreint inni hjá mér.
Mér heyrist veðrið eitthvað að vera að ganga niður svo bráðum fer ég kannski að hætta mér út fyrir dyr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.12.2007 | 08:41
Hænan og eggið...
Ég heyrði viðtal við einhvern fræðing í síðdegisútvarpinu í gær. Þessi kona hafði komist að því í rannsóknum sínum að þar sem fráskildir foreldrar hefðu sameiginlega forsjá barna sinna, þar væru samskipti friðsamlegri og eðlilegri en þegar ekki væri um sameiginlega forsjá að ræða. Hmmmmm.......
Er ekki málið að fólk sem getur átt friðsamleg og eðlileg samskipti sé líklegra til að hafa sameiginlega forsjá en hinir? Það held ég.
Þar fyrir utan finnst mér að það eigi að taka foreldra sem tala illa um hitt foreldri barna sinna þannig að þau heyri til, og rasskella þá opinberlega! Að því loknu ætti að senda þá á námskeið í almennri kurteisi, mannlegum samskiptum og uppeldi. Að eitt foreldri baknagi annað í eyru barna sinna finnst mér ófyrirgefanlegt.
Reyndar á enginn að baknaga annan en það er svo annað mál.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)